Lakagígar: Exploring the 25-kilometer volcanic fissure in the southern highlands

Lakagígar

 

Weather

 

Local Time

 

Lakagígar

„Lakagígar eru stórfengleg 25 km löng gígaröð á Síðumannaafrétti. Liggur hún frá móbergsfjallinu Hnútu, til norðausturs í gegnum fjallið Laka, sem er 818 metra yfir sjávarmáli, og endar í Vatnajökli. Laki stendur nokkurn veginn í miðri gígaröðinni og af honum er frábært útsýni yfir gígaröðina og lan...

„Lakagígar eru stórfengleg 25 km löng gígaröð á Síðumannaafrétti. Liggur hún frá móbergsfjallinu Hnútu, til norðausturs í gegnum fjallið Laka, sem er 818 metra yfir sjávarmáli, og endar í Vatnajökli. Laki stendur nokkurn veginn í miðri gígaröðinni og af honum er frábært útsýni yfir gígaröðina og landslag afréttarins. Það er óhætt að segja að útsýni yfir svæðið sé einstakt bæði vegna sérstæðrar náttúrunnar og vegna þeirrar sögu sem fylgir gígunum. (...) Lakagígar urðu hluti af Skaftafellsþjóðgarði árið 2004, Skaftafellsþjóðgarður varð svo hluti af Vatnajökulsþjóðgarði í júní 2008, en Lakagígar teljast til merkilegra jarðfræðiminja á heimsvísu.“