Hellnar: A historic fishing village and coastal gateway on the Snaefellsnes Peninsula
Hellnar
Weather
Local Time

Hellnar er fornt sjávarpláss um 3 km fyrir vestan Arnarstapa. Hellnar voru ein af stærstu verstöðvunum á Snæfellsnesi og urðu löggiltur verslunarstaður árið 1925. „Hellir mikill er í Valasnös, bjargi er skagar fram í sjóinn. Heitir hann Baðstofa og er frægur fyrir sérkennilega birtu og litbrigði við...
Hellnar er fornt sjávarpláss um 3 km fyrir vestan Arnarstapa. Hellnar voru ein af stærstu verstöðvunum á Snæfellsnesi og urðu löggiltur verslunarstaður árið 1925. „Hellir mikill er í Valasnös, bjargi er skagar fram í sjóinn. Heitir hann Baðstofa og er frægur fyrir sérkennilega birtu og litbrigði við vissar aðstæður“ (1). Ströndin við Stapa og Hellnar var friðlýst árið 1979 en margar fagrar og sérkennilegar bergmyndanir sem mótast hafa af briminu er að finna við sjó á þessum slóðum. Á svæðinu má finna sérkennilegar gjár sem ágangur sjávar hefur grópað í bergið og einnig ríkulegt fuglalíf (2). Gestastofa þjóðgarðsins Snæfellsjökuls var opnuð á Hellnum sumarið 2004 í húsum sem áður voru nýtt sem fjárhús (3).