Vatnshellir, Purkhólahraun

Vatnshellir gengur austur, vestur og suður úr stóru niðurfalli suðaustan Purkhóla, skammt ofan við Útnesveg (574). Hellirinn er mikið hruninn og jafnan er ís og vatn á gólfi hans. Nafn hellisins kemur til vegna þess að þangað var sótt vatn þegar það þraut í brunninum við Malarrif. Til suðurs frá nið...

Vatnshellir gengur austur, vestur og suður úr stóru niðurfalli suðaustan Purkhóla, skammt ofan við Útnesveg (574). Hellirinn er mikið hruninn og jafnan er ís og vatn á gólfi hans. Nafn hellisins kemur til vegna þess að þangað var sótt vatn þegar það þraut í brunninum við Malarrif. Til suðurs frá niðurfallinu er merkilegasti hluti hellisins, farið er inn um þrönga smugu og bratta skriðu og þar fyrir innan opnast stór hellir. Þar er mjög hátt til lofts, eða um 20 metrar og hefur hellirinn verið gerður aðgengilegur með hringstigum (1). Umferð um hann er aðeins leyfð með leiðsögn en ferðir með leiðsögn eru farnar alla daga allt árið um kring (2).