Krafla: Witness the raw energy of a shifting volcanic landscape
Krafla
Weather
Local Time

„Jarðhitasvæðið í Kröflu er í gamalli öskju sem er næstum fyllt upp á barma af móbergi og hraunum, en klofin í tvo helminga af gjástykki með NNA-SSV-stefnu. Sprengigígar og miklar leirmyndanir frá nútíma (Hvannstóð og Krókóttuvötn) vitna um öfluga hveravirkni vestast í öskjunni, þótt nú sé kalt. Hel...
„Jarðhitasvæðið í Kröflu er í gamalli öskju sem er næstum fyllt upp á barma af móbergi og hraunum, en klofin í tvo helminga af gjástykki með NNA-SSV-stefnu. Sprengigígar og miklar leirmyndanir frá nútíma (Hvannstóð og Krókóttuvötn) vitna um öfluga hveravirkni vestast í öskjunni, þótt nú sé kalt. Helsta einkenni jarðhitasvæðisins í Kröflu eru sprengigígarnir, bæði sakir stærðar (nokkur hundruð metrar að þvermáli) og hins hversu fagurlega lagaðir þeir eru og úrkastið auðrekjanlegt, og er þá átt við þá yngstu, Hvannstóð og gígana kringum Víti. Mat á stærð jarðhitasvæðisins í Kröflu og Námafjalli er metin 62 km2.“