Hveravellir: An oasis of steam and silica in the Icelandic highlands

Hveravellir

 

Weather

 

Local Time

 

Hveravellir

„Hveravellir hafa um aldir verið áningarstaður ferðalanga um Kjöl“ (1). Þar er eitt af stærstu hverasvæðum landsins, norðan undir Kjalhrauni (2) og einnig fornar minjar. Hverasvæðið er í dalverpi sem myndast milli hraunjaðarsins og Breiðamels, en í kringum það eru víða kulnuð hverasvæði. Á svæðinu h...

„Hveravellir hafa um aldir verið áningarstaður ferðalanga um Kjöl“ (1). Þar er eitt af stærstu hverasvæðum landsins, norðan undir Kjalhrauni (2) og einnig fornar minjar. Hverasvæðið er í dalverpi sem myndast milli hraunjaðarsins og Breiðamels, en í kringum það eru víða kulnuð hverasvæði. Á svæðinu hafa m.a. fundist minjar útilegumanna sem tengdar hafa verið við dvöl Eyvindar og Höllu á Hveravöllum (1). Á hverasvæðinu eru nokkrir vatnshverir sem hegða sér misjafnlega. „Öskurhólshver gýs gufu, Bræðrahverir og Eyvindarhver senda frá sér litlar vatnsgusur og Bláhver og Grænihver eru með kyrrt vatn í sinni skál“ (2). Hveravellir voru friðlýstir sem náttúruvætti árið 1960 vegna einstaks hverasvæðis (3). Á Hveravöllum er einnig baðlaug úr steypu og grjóti með klapparbotni (4).