Reykjavíkurtjörn

Tjörnin hefur frá fyrstu myndum þéttbýlis í Reykjavík verið miðpunktur byggðarinnar í miðbænum og mikilvægt svæði fyrir útivist og leiki. „Fuglalífið við Tjörnina hefur verið friðað frá 1919 en fram að því hafði svæðið verið vinsælt meðal skotveiðimanna. Við friðunina jókst mjög þéttleiki og fjölbre...

Tjörnin hefur frá fyrstu myndum þéttbýlis í Reykjavík verið miðpunktur byggðarinnar í miðbænum og mikilvægt svæði fyrir útivist og leiki. „Fuglalífið við Tjörnina hefur verið friðað frá 1919 en fram að því hafði svæðið verið vinsælt meðal skotveiðimanna. Við friðunina jókst mjög þéttleiki og fjölbreytileiki fugla á svæðinu og hefur hið auðuga fuglalíf verið sterkt einkenni Miðborgarinnar síðan þá og þykir mikið bæjarprýði. Samhliða friðun var sett á siglingabann og gátu þá fuglar orpið óáreittir í hólmum Tjarnarinnar, en þeir eru enn þann dag í dag mikilvægustu varpstaðir svæðisins. Einkennistegundir Tjarnarinnar hafa lengstum verið endur, gæsir og álftir.“